Innlent

Sofnaði undir stýri - Minna slösuð en talið var

Bílvelta varð við Baldursheimsveg við sunnanvert Mývatn í morgun. Ein stúlka var í bílnum og var hún flutt á sjúkrahús á Akureyri. Talið er að hún hafi sofnað undir stýri.

Neyðarlínu barst tilkynning um slysið um hálf-tíu leytið í morgun og voru lögregla og sjúkrabíll send á slysstað frá Húsavík.

Stúlkan reyndist minna slösuð en talið var í fyrstu, en hún hafði komið sér út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Bifreiðin er ónýt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×