Hola myndaðist í jörðinni á Selfossi Erla Hlynsdóttir skrifar 8. ágúst 2011 10:42 Undir malbikinu er um tveggja fermetra holrými Myndir Sæunn Ósk Kristinsdóttir
Hola myndaðist í götunni við Víðivelli á Selfossi í gær. Ekki er útilokað að um sé að ræða síðbúin eftirköst jarðskjálftans sem var á svæðinu árið 2008. „Krakkarnir okkar fundu holuna í gær. Þá var hún miklu minni en stækkaði eftir því leið á daginn," segir Sæunn Ósk Kristinsdóttir, íbúi við Víðivelli 10. Götunni var lokað fyrir umferð í gær og holan girt af til að koma í veg fyrir slys. Fulltrúar frá Árborg komu og skoðuðu holuna í morgun. Gatið í malbikinu er um hálfur meter í þvermál en undir því er stærra holrúm, líklega um tveir fermetrar. Jón Tryggvi Guðmundsson, tæki- og veitustjóri Árborgar, segir að holan verði skoðuð frekar í dag. Þá verður fráveitulögnin við götuna mynduð til að kanna hvort laus jarðefni hafi farið inn í skolplögn. Þó hefur ekki verið orðið vart við neina tregðu í lögnunum. Jón Tryggvi segir of snemmt að fullyrða um ástæður þess að holan myndast. „Það geta verið fleiri en ein ástæða fyrir jarðsiginu," segir hann. Að sögn Sæunnar Óskar er nokkuð langt síðan íbúar við götuna urðu varir við hálfgerða dæld í malbikinu. „Þetta var svona eins og öfug hraðahindrum," segir hún. Jarðskjálftinn 2008 var mjög öflugur og þurfti í kjölfar hans að rífa nokkur hús sem voru gjörónýt. Þar á meðal var húsið við Víðivelli 12 rifið, sem stóð skammt frá þar sem holan myndaðist. Tveir suðurlandsskjálftar riðu yfir samtímis í maí 2008. Þeir voru um 6,3 stig á Richter og fundust svo fjarri upptökunum sem á Ísafirði.
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Erlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Innlent Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Veður Grunar vinstriöfgamenn um græsku Erlent Fleiri fréttir Gýs á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Sjá meira