Íslenski boltinn

Baldur, Guðjón og Skúli Jón á bekknum gegn Tbilisi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón, Bjarni og Viktor fagna marki á Fylkisvelli fyrr í sumar.
Guðjón, Bjarni og Viktor fagna marki á Fylkisvelli fyrr í sumar. Mynd/HAG
Baldur Sigurðsson, Guðjón Baldvinsson og Skúli Jón Friðgeirsson eru allir á varamannabekk KR sem mætir Dinamo í Tbilisi ytra klukkan 17. Auk þess fóru Bjarni Guðjónsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson og Viktor Bjarki Arnarson ekki með liðinu til Georgíu.

Rúnar Kristinsson þjálfari KR tjáði blaðamanni Vísis að loknu 4-1 tapinu í fyrri leiknum á KR-velli að hann myndi gefa leikmönnum tækifæri í leiknum sem hefðu lítið fengið að spila í sumar.

Aron Bjarki Jósepsson og Gunnar Þór Gunnarsson koma inn í vörn KR-inga. Þá verður Egill Jónsson á miðjunni ásamt Birni Jónssyni.

Aðeins fjórir varamenn eru á skýrslu hjá KR-ingum en heimilt er að vera með sex varamenn.

Leikurinn er í beinni útsendingu í KR-útvarpinu á FM 98.3 eða á netinu með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×