Innlent

Gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur

Fulltrúi í stjórn Orkuveitunnar gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur og segir það skjóta skökku við að á meðan niðurskurðahnífnum er beitt á Orkuveitu Reykjavíkur skuli hundruðum milljóna dælt í Gagnaveituna.

Í nýjustu fundargerð stjórnar OR er greint frá samningsviðræðum um lán Landsbankans til Gagnaveitu Reykjavíkur sem áður hét lína net. Kjartan Magnússon, greiddi einn atkvæði gegn tillögu um lánið.

„Orkuveitan starfar nú eftir neyðaráætlun í fjármálum og það hefur öllu verið snúið viðí fyrirtækinu og reyndar öllum borgarrekstrinum til að spara. Og meðal þess sem hefur verið skorið niður eru framkvæmdir vegna endurnýjunar og aðhalds í veitukerfum fyrirtækisins þar sem margt er komið á tíma. Þar er teflt á tæpasta vað að mínu viti," segir Kjartan sem telur það því ótækt að á meðan haldi Gagnaveita Reykjavíkur áfram framkvæmdum af fullum krafti víða um land.

Kjartan gagnrýnir einnig í bókun sinni að stjórn Orkuveitunnar hafi samþykkt mögulega seinkun á afborgunum af láni Orkuveitunnar til Gagnaveitu Reykjavíkur en Gagnaveitan skuldar Orkuveitu Reykjavíkur fimm, til sex milljarða.

„Sá möguleiki er fyrir hendi að afborganir af miklum lánum Orkuveitunnar til Gagnaveitunnar verði seinkað. Ég tel það óviðunandi á meðan Orkuveitan þarf á öllum sínum tekjum að halda vegna þess að endurfjármögnun fyrirtækisins var klúðrað með eftirminnilegum hætti síðasta vetur."

Upplýsingar um upphæð lánsins til Gagnaveitunnar fengust ekki uppgefnar í dag. Hvorki frá Orkuveitunni né Gagnaveitu Reykjavíkur og hvílir trúnaður á minnisblöðum sem gætu varpað ljósi á málið. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða aukafjármögnun til Gagnaveitunnar upp á nokkur hundruð milljónir króna.

Er eðlilegt að leyndarhjúpur hvíli á slíkum upplýsingum.

„Nei, mér finnst eðlilegt að allar slíkar upplýsingar séu dregnar fram og kynntar almenningi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×