Innlent

Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Skeifan er glæsileg og sómir sér vel í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Það tók Ísleif ekki nema um sjö mánuði að smíða hana.
Skeifan er glæsileg og sómir sér vel í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Það tók Ísleif ekki nema um sjö mánuði að smíða hana. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Stærsta skeifa heims vekur nú mikla athygli gesta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, en í skeifunni eru 2.852 notaðar skeifur, sem hafa verið undir hestum út um allt land í gegnum árin.

Risa skeifan er staðsett rétt við selalaugina í garðinum en hún var sett þar upp um miðjan júní síðastliðinn og hefur vakið mikla athygli gesta. Sá sem á heiðurinn af smíði skeifunnar er Ísleifur Friðriksson, sem er járnsmíðameistari.

„Já, hér er til sýnis skeifan Víðförull, sem er svona óður til ferðamanna eða ferðalanga smíðuð í vetur úr 2.852 skeifum, sem mér hafa áskotnast hér og þar um landið. Allar þessar skeifur hafa farið eitthvað og gert eitthvað,” segir Ísleifur stoltur.

Ísleifur segir að þegar hann fór á eftirlaun á síðasta ári hafi hann ákveðið að skella sér í skeifuverkefnið, hann varð að hafa eitthvað fyrir stafni, nennti ekki að hanga og gera ekki neitt eins og hann segir sjálfur.

Og ertu ekki bara stoltur og ánægður með þetta?

„Ég er mjög ánægður með hana af því að ég veit að hún er langstærsta skeifa í heiminum í dag. Næsta skeifa er 1700 skeifur, þessi er 2.852 skeifur. Þessi næst stærsta er staðsett í Arabísku furstadæmunum í einhverjum voðalegum fansi reiðklúbb. Skeifan mín er 4,50 cm á hæð, hin er ekki nema 2 metrar,” bætir Ísleifur við.

Listaverkið heitir Víðförull.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er mjög ánægt með skeifuna, nýjasta listaverk svæðisins.

„hún er stórkostlega flott, stór og tignarleg og vekur mjög mikla athygli og hamingju,” segir Elsa Kristrún Bjarnadóttir, dýrahirðir í garðinum.

Elsa Kristrún, dýrahirðir í garðinum og Ísleifur, ásamt hestinum Kili.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er alveg óráðið hvað skeifan verður lengi í garðinum en Ísleifur segir að hún til sölu ef einhver hefur áhuga enda segist hann ekki hafa pláss fyrir hana heima hjá sér.

„Nei, ég bý upp á fimmtu hæð, þannig að það er erfitt að koma henni þangað,” segir hann skellihlæjandi.

Hafi einhver áhuga á að kaupa skeifuna af Ísleifi þá er hún föl.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×