Innlent

Neitaði að segja til nafns

Mynd/Villi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tuttugu og tveggja ára karlmann um klukkan hálf þrjú í dag en hann neitaði að segja til nafns. Lögreglumenn höfðu afskipti af manninum í Bankastræti í miðborginni eftir að hann var ekki í öryggisbelti.

Þegar lögreglumenn ætluðu svo að sekta hann neitaði hann að segja frá nafni sínu. Hann var því handtekinn og fluttur upp á lögreglustöð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagði maðurinn að lokum hvað hann héti og var því frjáls ferða sinna stuttu síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×