Jóni Bjarnasyni hótað embættismissi Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. ágúst 2011 11:54 Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var hótað embættismissi vegna ágreinings milli hans og Össur Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, en Jón hefur ekki viljað svara spurningum Evrópusambandsins um landbúnaðarmál. Össur hefur um hríð krafist þess að Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra svari spurningum Evrópusambandsins um greiðslustofnun landbúnaðar og landupplýsingakerfi, sem grundvallar styrkjakerfi Evrópusambandsins í landbúnaði. Jón vill hins vegar bíða eftir væntanlegri rýniskýrslu ESB um málaflokkinn og bíða með að svara spurningum þar til sú skýrsla hefur litið dagsins ljós. Þetta hefur leitt til vaxandi spennu í samskiptum ráðherranna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Til þess að ganga inn í Evrópusambandið þarf Ísland að uppfylla ákveðin skilyrði á sviði landbúnaðar, eins og annarra málaflokka. Meðal annars þarf að setja hér upp áðurnefnda greiðslustofnun og sérstakt landupplýsingakerfi. Morgunblaðið greinir frá því að deilur ráðheranna tveggja, Össurar og Jóns, vegna trega hins síðarnefnda til að svara spurningum sambandsins, hafi gengið svo langt að Jóni hafi verið tjáð að hann gæti misst ráðuneyti sitt vegna málsins. Þetta er í samræmi við heimildir fréttastofunnar, en því hefur ekki verið neitað í að til tals hafi komið að Jón hætti sem ráðherra vegna ágreiningsins. Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir að hvorki hann né ráðherrann séu á förum. „Það er enginn hérna að pakka niður," segir hann. Jón Bjarnason varð ekki við ósk fréttastofunnar um viðtal vegna málsins. Þá náðist ekki í Össur Skarphéðinsson í morgun.
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Erlent Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Erlent Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Erlent Fleiri fréttir „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Sjá meira