Innlent

Strokleður með fígúrum líklegust til að innihalda þalöt

Vaxlitir eru þarfaþing í skólanum hjá yngstu bekkjunum.
Vaxlitir eru þarfaþing í skólanum hjá yngstu bekkjunum.
Umhverfisstofnun hefur tekið saman nokkur ráð sem vert er að hafa í huga við kaup á skólavörum. Flestir bera saman verð og gæði við val á skólavörum en vert er að hafa í huga að stundum geta skólavörur innihaldið efni sem eru skaðleg börnum undir vissum kringumstæðum.

Dæmi um slík efni eru þalöt í mjúku plasti og gúmmíi. Þau er að finna í fjölda skólavara, svo sem í drykkjarílátum, pennaveskjum, skólatöskum, nestisílátum, endurskinsmerkjum og strokleðri. Þá geta vörur með sterka efnalykt, til dæmis tússlitir og stroklegur, verið skaðleg.

Umhverfisstofnun vekur athygli á því að þalöt raska hormónastarfsemi líkamans sem getur leitt til skertrar frjósemi og þótt búið sé að banna notkun algengustu þalata í leikföngum og ungbarnavörum nær bannið ekki til skólavara fyrir grunnskólabörn. Framleiðendur, innflytjendur og söluaðilar skólavara bera ábyrgð á að vörur þeirra uppfylli settar reglur.

Nokkur ráð við heilsu- og umhverfismeðvituð kaup á skólavörum



  • Veljið CE merktar vörur en CE merkið þýðir að varan er framleidd í samræmi við evrópska staðla og reglur
  • Verið vandlát á gæði: Vandaðar vörur endast betur og skila umhverfislegum ávinningi í minna sorpi
  • Forðist drykkjarílát úr mjúku plasti með endurvinnslumerkið PVC 3 og hörðu glæru plasti með endurvinnslumerkið 7
  • Ekki naga strokleður og plast


„Algengt er að mjúkt plast og strokleður séu úr PVC-plasti (pólývinýlklóríð) sem inniheldur þalöt. Talið er líklegt að börn komist í mesta snertingu við þalöt við notkun á drykkjarflöskum úr plasti. Auk þess eru sumir plasthlutir þannig gerðir að börn freistast til að naga þá og eru þá útsett fyrir skaðlegum efnum á borð við þalöt í plastinu. Strokleður með fígúrum eða sem taka á sig hin ýmsu form eru líklegust til að innihalda þalöt en hægt er að kaupa strokleður án PVC. Þalöt geta losnað út í umhverfið í örlitlum mæli frá hlutum, loðað við ryk og verið langtímum saman í andrúmslofti innanhúss," segir á vef Umhverfisstofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×