Innlent

Engin þyrla til taks hjá landhelgisgæslunni

Bilun kom upp í TF-LÍF þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær. Hin þyrlan, TF-GNÁ er í reglubundnu viðhaldi og verður ekki nothæf fyrr en í næsta mánuði. Því er engin þyrla til taks eins og staðan er nú því senda þarf eftir varahlut í LÍF frá útlöndum.

Fundað verður um málið hjá Landhelgisgæslunni þegar líða tekur á morgunin en hugsanlega fæst undanþága fyrir notkun hennar þrátt fyrir bilunina í ljósi þess að vélin er sögð flughæf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×