Innlent

Stúlka í bílstól fannst á gangstétt í nótt - foreldrarnir gleymdu henni

Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu klukkan tuttugu mínútur fyrir sex í morgun um ungabarn í barnabílsstól sem var einsamalt út á gangstétt í Vesturbænum. Um var að ræða stúlkubarn í bleikum galla og vel búið með pela.

Lögregla og barnavernd var kölluð á staðinn en um klukkutíma síðar kom skýring. Foreldrarnir, sem voru að fara að bera út blöð, höfðu ætlað að taka stúlkuna með sér í blaðburðinn en höfðu einfaldlega gleymt að spenna hana í bílinn áður en þau héldu af stað.

Barnaverndarnefnd hefur tekið við málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×