Innlent

Netskráningu í Reykjavíkurmaraþonið lýkur í dag

Mynd úr safni
Rúmlega fjórar klukkustundir eru nú þar til netskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka ljúki. Skráning fer fram á síðunni marathon.is og lýkur klukkan 16.00. Þegar hafa 8.110 skráð sit til þátttöku. Búist er við að um 10 þúsund manns taki þátt.

Áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka gengur einnig vel en alls hafa  tæplega 19 milljónir safnast til góðra málefna. Á sama tíma í fyrra var búið að safna 15,4 milljónum og því ekki ólíklegt að söfnunin fari yfir þær tæpu 30 milljónir sem söfnuðust árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×