Viðskipti erlent

Asda fráhverf því að bjóða í Iceland í heild sinni

Breska verslunarkeðjan Asda er orðin fráhverf því að bjóða í verslunarkeðjuna Iceland Foods í heild sinni. Hinsvegar mun Asda hafa áhuga á því að kaupa einstakar verslanir Iceland fari svo að þær verði settar markaðinn.

Þetta kemur fram í frétt í Financial Times í dag. Asda er næststærsta stórmarkaðakeðja Bretlands miðað við markaðshlutdeild og er í eigu Wal Mart í Bandaríkjunum.

Í Financial Times er haft eftir Andy Clarke forstjóra Asda að keðjan hafi ekki lyst á Iceland í heild sinni en eins og komið hefur fram í fréttum er Iceland nú til sölu og vill skilanefnd Landsbankans fá 1,5 milljarða punda fyrir hana. Clarke segir að margar verslanir Iceland séu undir þeim stærðarmörkum sem Asda setur sér auk þess að bílastæði skortir við fjölda þeirra.

Aðspurður um hvort Asda gæti hugsað sér að bjóða í Iceland ásamt annarri verslunarkeðju og þær síðan skipta verslununum upp á milli sín svarar Clarke: "Við skulum sjá hvernig málin þróast."

Áhugi Asda á að kaupa Iceland var ljós strax í vor en þá komu jafnfram upp spurningar hvort keðjan gæti keypt Iceland í heilu lagi vegna samkeppnissjónarmiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×