Viðskipti erlent

Grænar tölur á hlutabréfamörkuðum

Mynd úr safni
Stærstu hlutabréfamörkuðum heimsins var lokað í grænum tölum í gær eftir afar sveiflukennda viku.

Þetta hefur verið viðburðarík vika á verðbréfamörkuðum um allan heim, en verð á hlutabréfum hefur sveiflast mikið.

Mikill titringur var í fjárfestum í byrjun vikunnar þegar markaðir opnuðu í fyrsta sinn eftir að lánshæfismat Bandaríkjanna var lækkað um síðustu helgi.

Þá tóku hlutabréf um allan heim dýfu, en síðan þá hafa stærstu markaðir farið upp og niður til skiptis, jafnvel um mörg prósent í einu.

Flestir markaðir voru þó í grænum tölum eftir daginn í gær þegar mörkuðum var lokað, þó heildarávöxtun hafi víða verið neikvæð yfir vikuna.

Bandaríska Dow Jones vísitalan fór upp um rúmt prósent, en í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi risu helstu vísitölur um þrjú til fjögur prósent.

Breska FTSE vísitalan fór í vikunni niður fyrir 5000 stig í fyrsta sinn í heilt ár, en var komin vel yfir 5300 stig í gær.

Þó hlutabréfaverð sé víðast hvar enn lægra en þegar það var hvað hæst í ár, virðist þó við fyrstu sýn að betur hafi farið en á horfðist eftir þessa sveiflukenndu viku á mörkuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×