Viðskipti erlent

Dönsk fyrirsæta borgaði ekki skatt í 6 ár

Danskir fjölmiðlar fjalla mikið í dag um dómsmál sem skattyfirvöld reka  gegn hinni þekktu dönsku fyrirsætu Camillu Vest Nielsen. Í ljós hefur komið að Camilla borgaði hvergi skatta í ein sex ár og er því talin skulda 6,5 milljónir danskra kr. eða um 130 milljónir kr., í skatta.

Í umfjöllun um málið á vefsíðu börsen segir að árið 1995 hafi Camilla flutt til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum Peder Nielsen sem vinnur sem hagfræðingur hjá A.P Möller-Mærsk. Árið 2000 segir hún sig frá lögheimili sínu í Bandaríkjunum en skráir sig hvergi annarsstaðar til lögheimilis. Það er ekki fyrr en árið 2006 að hún skráir lögheimili sitt að nýju í Danmörku.

Danski skatturinn telur sig geta sannað að Camilla hafi búið í rándýrri íbúð eiginmanns síns í Danmörku þessi sex ár sem þarna liðu á milli, það er hafi dvalið þar meir en 180 daga á ári sem eru tímamörkin fyrir því að borga skatta í Danmörku.  Þetta getur skatturinn sýnt fram á með upplýsingum úr ýmsum gögnum, eins og tölvusamskiptum þeirra hjóna og farsímasamtölum.

Þá er eiginmaðurinn, Peder Nielsen, einnig ákærður í málinu fyrir að hafa aðstoðað eiginkonu sína við skattsvikin. Inn í málið blandast að þau hjónin stofnuðu svokallað skúffufélag í Lúxemborg en í gegnum það fóru allar tekjur hennar frá árinu 2000.

Þau hjónin segjast vera saklaus af þessum ákærum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×