Innlent

Grunur um kannabisræktun í íbúð sem brann

Grunur leikur á að kannabisræktun hafi verið í risíbúðinni í parhúsinu við Nesveg í Reykjavík, þar sem magnaður eldur kviknaði í gærkvöldi og eyðilagði íbúðina. Þar munu hafa verið hitalampar, sem hugsanlega hafa valdið íkveikjunni, en lögrelga verst allra fregna þar til starfsmenn rannsóknardeildar mæta á vakt.

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang þar sem mikill eldur logaði í íbúðinni, en hún reyndist mannlaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×