Íslenski boltinn

Ólafur: Kom ekki til greina að hætta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur á blaðamannafundinum í dag.
Ólafur á blaðamannafundinum í dag. Mynd/Stefán
Ólafur Jóhannesson, fráfarandi landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, segir að það hafi ekki komið til greina að hætta áður en samningur hans við KSÍ rennur út.

Tilkynnt var á blaðamannafundi KSÍ í dag að Ólafur myndi ljúka störfum hjá KSÍ þegar núverandi samningur hans rennur út, það er eftir að undankeppni EM 2012 lýkur.

Vísir spurði Ólaf hvort að hann hafi íhugað að hætta strax þegar honum var tilkynnt um þessa niðurstöðu. „Nei,“ sagði hann einfaldlega og vildi ekki fara nánar út í þessa sálma.

„Ég tel ekki tímabært að ræða það á þessum tímapunkti. Við erum að einbeita okkur að þessum tveimur leikjum og ég vil bara ræða þá,“ sagði Ólafur en Ísland mætir Noregi og Kýpur í undankeppninni í byrjun september. Landsliðshópurinn var tilkynntur í dag.

Hann var þó reiðubúinn að svara spurningum um hvað honum þætti um þá umræðu sem hefur verið um gengi landsliðsins og hans stöðu sem landsliðsþjálfara.

„Hvað hef ég langan tíma,“ spurði hann þegar Vísir spurði hann um hans álit á umræðunni. „Þessi blaðamannafundur er um þessa tvo leiki en ég gæti talað við ykkur í marga klukkutíma um það.“

„En ég gerði mér grein fyrir því þegar ég tók að mér þetta starf að það væri mikil pressa sem fylgdi því. Ég held að ég hafi sagt strax í upphafi að ég yrði afhausaður á einhverjum tímapunkti - eins og þeir sex þjálfarar sem voru á undan mér. Þeir lentu allir í þessu.“

„Það var ráðist á suma þeirra úti á götu - ég hef nú sloppið við það þó svo að ég hafi fengið nokkuð símtöl.“

„En eftir tvö ár velti ég því lengi fyrir mér hvort ég ætti að taka slaginn eða ekki. Ég gerði það og sé alls ekki eftir því í dag. Þetta hefur verið frábær tími.“

Hann segist þó feginn að þessu sé að ljúka. „Já, já - það er ágætt. En ég vissi þetta fyrir löngu.“

Var umræðan ósanngjörn að hans mati? „Ég veit það ekki. Bæði og.“


Tengdar fréttir

Ólafur hættir með landsliðið í haust

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, mun ekki halda áfram með íslenska landsliðið eftir að undankeppni EM lýkur í haust. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, tilkynnti þetta á blaðamannafundi nú áðan.

Geir: Leitin hafin að næsta þjálfara

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, vildi ekki mikið tjá sig um þjálfaramál A-landsliðs karla en tilkynnt var í dag að Ólafur Jóhannesson myndi ekki halda áfram í starfinu þegar núverandi samningur hans rennur út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×