Viðskipti erlent

Obama tilkynnti niðurskurðartillögur í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama tilkynnti niðurskurðartillögurnar.
Barack Obama tilkynnti niðurskurðartillögurnar. Mynd/ AFP.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur kynnt áætlanir sínar til þess að draga úr fjárlagahalla Bandaríkjanna og örva hagvöxt. Á fundi í Hvíta húsinu í dag sagði hann að nauðsynlegt væri að skerða framlög til heilbrigðismála en hann sagði jafnframt að hinir auðugu yrðu að greiða hærri skatta.

Í ávarpi, sem sjónvarpað var úr Rósargarðinum við Hvíta húsið, sagði Obama að ef Bandaríkin myndu ekki bregðast við fjárlagahallanum núna myndu skuldir ríkisins falla á framtíðarkynslóðir. „Við verðum að skera niður það sem við höfum ekki efni á og greiða fyrir það sem skiptir máli," sagði Obama.

Hann boðaði að framlög til heilbrigðismála yrðu skorin niður um 250 milljarða dala. Það samsvarar 29 þúsund milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×