Viðskipti erlent

Fjárlagahalli Grikkja: Ná ekki markmiðum sínum

Georg Papandreu forsætisráðherra Grikkja á ekki sjö dagana sæla nú um stundir.
Georg Papandreu forsætisráðherra Grikkja á ekki sjö dagana sæla nú um stundir.
Gríska ríkisstjórnin tilkynnti í gærkvöldi að hallinn á fjárlögum þessa árs verði meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Á síðasta ári nam hallinn 10,5 prósentum af vergri landsframleiðslu en takmarkið fyrir árið í ár var að minnka hallan svo hann yrði 7,6 prósent. Nú er hinsvegar ljóst að það markmið næst ekki og er gert ráð fyrir 8,5 prósenta halla.

Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn höfðu sett Grikkjum ströng fyrirmæli um að minnka hallann í ár og á næsta ári og því var farið í umfangsmiklar niðurskurðaraðgerðir og skattahækkanir. Þessar aðgerðir duga þó hvergi nærri til og kenna Grikkir versnandi efnahagsástandi heimsins almennt um. Þetta olli töluverðum lækkunum á hlutabréfum í Asíu í nótt og lækkaði aðalvísitalan í Hong Kong um tæp fimm prósent áður en yfir lauk við lokun.

Búist er við að þessar fregnir muni hafa svipuð áhrif á hlutabréfaverð í Evrópu þegar markaðir opna þar nú klukkan sjö. Grikkir þurfa frekari lánafyrirgreiðslu frá Evrópu eða átta milljarða evra eigi þeim að takast að forðast gjaldþrot í næsta mánuði. Gjaldþrot Grikkja myndi síðan vekja spurningar um framtíð evrunnar, valda usla í evrópska bankakerfinu og mögulega koma af stað svipuðum hremmingum hjá öðrum þjóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×