Fótbolti

Öruggur sigur hjá AC Milan

Alltaf hressir. Ólátabelgirnir Cassano og Robinho fagna marki Nocerino á sinn hátt - með því að hrinda honum.
Alltaf hressir. Ólátabelgirnir Cassano og Robinho fagna marki Nocerino á sinn hátt - með því að hrinda honum.
AC Milan rétti aðeins úr kútnum í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið vann sannfærandi 3-0 heimasigur á Palermo í kvöld.

Antonio Nocerino, Robinho og Antonio Cassano skoruðu mörk Milan í kvöld.

Milan reif sig upp í ellefta sæti með sigrinum en basl hefur verið á liðinu í upphafi tímabils rétt eins og hjá nágrönnum þeirra í Inter. Milan er þó á réttri leið ólíkt nágrannaliðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×