Handbolti

Umfjöllun: Stjörnustúlkur unnu sinn fyrsta leik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jóna Margrét Ragnarsdóttir.
Jóna Margrét Ragnarsdóttir. Mynd/Vilhelm
Stjörnustúlkur unnu í kvöld sinn fyrsta sigur í N1 deild kvenna á þessu ári þegar þær unnu 36-34 sigur á HK í Mýrinni í kvöld.

Stjörnustúlkur höfðu tapað sínum eina leik til þessa gegn Valsstúlkum en HK höfðu unnið báða sína leiki gegn Fram og KA/Þór.

Stjörnustúlkur komu grimmar inn í fyrri hálfleik og náðu forskoti snemma leiks sem þær héldu út hálfleikinn. Mest fór munurinn upp í 9 mörk en HK-stúlkur náðu að minnka muninn niður í 6 stig fyrir hálfleik og var staðan 23-17 fyrir Stjörnustúlkum.

HK-stúlkur komu þó gríðarlega einbeittar inn í seinni hálfleik og söxuðu niður forskot Stjörnustúlkna jafnt og þétt og jöfnuðu leikinn þegar 10. mínútur voru búnar af hálfleiknum í 26-26, þar af átti Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir í marki HK stórann þátt en hún varði 7 bolta á þessum 10. mínútna kafla. Þær fullkomnuðu svo baráttu sína með að ná í fyrsta sinn í leiknum forystunni í stöðunni 28-27 þegar 13. mínútur voru búnar af seinni hálfleik.

Gústa Adolf Björnsson, þjálfari Stjörnunnar tók þá leikhlé og endurskipulagði leik sinna stúlkna sem bar ríkann árangur, þær unnu sig aftur inn í leikinn og náðu öruggri forystu sem þær slepptu ekki það sem eftir lifði leiks og unnu að lokum 36-34 sigur.

HK stúlkur geta tekið margt gott úr þessum leik, þær sýndu flotta frammistöðu í seinni hálfleik eftir að hafa verið sofandi í fyrri hálfleik.

Stjarnan – HK 36 – 34 (23 - 17)

Mörk Stjörnunnar(Skot): Jóna Margrét Ragnarsdóttir 9/3 (15/4), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6 (6) , Sólveig Lára Kjærnsted 6 (10), María Karlsdóttir 5 (6), Hildur Harðardóttir 5 (5), Rut Steinssen 4 (7), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 1 (1).

Varin skot: Jennifer Holmberg 7(26, 26.9%), Kristín Ósk Sævarsdóttir 3 (7, 42.8%)

Hraðaupphlaupsmörk: 5 (Hanna G. Stefánsdóttir 4, Sólveig Lára Kjærnsted)

Fiskuð víti: 4 (Hanna G. Stefánsdóttir 2, Hildur Harðardóttir, Sólveig Lára Kjærnsted)

Utan vallar: 6 mínútur.

Mörk HK (skot): Brynja Magnúsdóttir 9/1 (14/1), Arna Björk Almarsdóttir 6 (9), Elín Anna Baldursdóttir 5 (5), Elva Björg Arnarsdóttir 4(5), Jóna Sigríður Halldórsdóttir 4 (7), Elísa Ósk Viðarsdóttir 3(6), Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2(3), Heiðrún Björk Helgadóttir 1 (1).

Varin skot: Ólöf K. Ragnarsdóttir 8/0 (30/2, 26,7%), Dröfn Haraldsdóttir 4 (20, 20%)

Hraðaupphlaupsmörk: 1 (Elísa Ósk Viðarsdóttir)

Fiskuð víti: 1(Arna Björk Almarsdóttir)

Utan vallar: 2 mínútur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×