Erlent

News of the World njósnaði um Vilhjálm Bretaprins

Mappa með sönnunargögnum úr njósnamálinu sem rekið er gegn útgefendum slúðurblaðsins News of the World sýna að Vilhjálmur Bretaprins var meðal þeirra einstaklinga sem blaðið njósnaði um.

Einnig var njósnað um Chelsy Davy fyrrum kærustu Harry prins og fótboltastjórann Jose Mourinho auk annarra.

Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum BBC Newsnight í gærkvöldi en BBC hefur möppuna undir höndum. Umfang njósna News of the World var gífurlegt. Þannig segir einn þeirra einkaspæjara sem tók þátt í þeim að hann hafi fylgt meir en 100 persónum eftir á þeim átta árum sem blaðið borgaði honum fyrir njósnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×