Viðskipti erlent

Grikkland á leið út úr evrusamstarfinu?

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Það er mat sérfræðinga á fjármálamarkaði að raunverulega hætta sé á því að Grikkir yfirgefi Evrópska myntbandalagið og þar með evrusamstarfið fari svo að björgunarpakki til handa Grikkjum verði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Helstu hlutabréfavísitölur Evrópu féllu í morgun eftir að George Papandreou, forsætisráðherra Grikkja, tilkynnti óvænt í gærkvöldi að sérstakur björgunarpakki sem samþykktur var í Brussel á fimmtudag færi í þjóðaratkvæðagreiðslu í Grikklandi. Tilkynningin kom eins og blaut tuska framan í andlitið á leiðtogum samstarfsþjóða á evrusvæðinu sem höfðu teygt sig afar langt til að ná 50 prósent niðurfellingu á skuldum Grikklands.

Ekki búið „fyrr en feita konan hefur sungið"

„Yfirlýsingin í gærkvöldi var mikið áfall. Það sem má læra af allri þessari evrópsku skuldakreppu er að þessu lýkur ekki fyrr en feita konan hefur sungið," segir David Jones, markaðssérfræðingur hjá IG Index.

Óvíst er hvaða afleiðingar það hafi verði björgunarpakkinn felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu en talið er líklegt að það þýði að Grikkir fari hreinlega út úr Evrópska myntbandalaginu.

„Við erum að fara inn á ókannað svæði. Það er öruggt að við erum að hjálpa Evrópu að losna við Grikkland. Nú munum við sjá grískt efnahagslíf færast aftur um marga áratugi," segir Vangelis Agapitos, grískur hagfræðingur.

Stefan Scharffetter, sérfræðingur hjá Baader Bank segir vel mögulegt að Grikkir yfirgefi myntsamstarfið. „Ef Grikkir segja að þeir vilji þetta ekki er hugsanlegt að Grikkland verði að yfirgefa myntbandalagið. Þá hefst nýr kafli. Hvað verður um sameiginlegan gjaldmiðil þegar aðildarríki hættir? Kemur þá nýr gjaldmiðill?"

Óvíst er hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin, en hugsanlegt er að það verði ekki fyrr en á næsta ári. Fram að því er áframhaldandi óvissa um stöðuna á mörkuðum í Evrópu. thorbjorn@stod2.is


Tengdar fréttir

Samflokksmenn krefjast afsagnar Papandreús

Sex háttsettir þingmenn úr stjórnaflokknum Pasok á Grikklandi hafa krafist þess að Papandreu forsætisráðherra og formaður flokksins, segi af sér. Krafan kemur fram tæpum sólarhring eftir að Papandreu lýsti því yfir að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin þar sem Grikkir fá að greiða atkvæði um fyrirhugaðan björgunarpakka Evrópusambandsins.

Enn ríkir óvissa um úrlausn evruvandans

Óhætt er að segja að mikið sé lagt undir á leiðtogafundi Evrópusambandsins og evrusvæðisins sem fram fer í Brussel í dag. Á fundinum verður leitast við að ganga frá endanlegri lausn á skuldavanda ESB-ríkjanna sem hefur vomað yfir álfunni og alþjóðlegu fjármálalífi síðustu misseri.

Grikkir borguðu látnu fólki 1.300 milljarða í lífeyri

Stærsti lífeyrissjóður Grikklands hefur viðurkennt að hafa á síðustu 10 árum greitt tugþúsundum af látnu fólki lífeyrir sem nemur allt að 8 milljörðum evra eða nær 1.300 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×