Viðskipti erlent

Berlusconi sagði af sér

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Silvio Berlusconi sagði af sér embætti í kvöld.
Silvio Berlusconi sagði af sér embætti í kvöld. Mynd/AP
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér embætti nú í kvöld. Hann hafði verið forsætisráðherra í 17 ár. Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, veitti honum lausn úr embætti en líklegt þykir að Napolitano muni skipa Mario Monti sem arftaka hans, eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC.

Mikill efnahagsvandi steðjar nú að Ítalíu og Berlusconi hafði fyrir helgi lofað því að yfirgefa embætti um leið og þingið hafði samþykkt nýja efnahagsáætlun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×