Körfubolti

Sverrir Þór tekur við kvennalandsliðinu

KKÍ hefur ráðið Sverri Þór Sverrisson sem landsliðsþjálfara kvennalandsliðsins. Anna María Sveinsdóttir mun aðstoða Sverri Þór með liðið.

Fyrsta verkefni Sverris með landsliðið er Norðurlandamót sem fer fram í maí á næsta ári.

Sverrir Þór er fyrrverandi landsliðsmaður og átti afar farsælan feril sem leikmaður en hann lék lengstum með Keflavík. Hann hefur verið þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur síðustu tvö ár.

Anna María er ein besta körfuboltakona Íslands frá upphafi og hún hefur áður starfað með Sverri í Keflavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×