Enski boltinn

Öll mörk vikunnar á Vísi

Eins og ávallt má sjá samantektir úr öllum leikjum síðustu umferðar í ensku úrvalsdeildinni á Sjónvarpsvef Vísis.

Heil umferð fór fram í vikunni og ný hefst svo á mánudag, á öðrum degi jóla. Að lokinni hverri umferð birtast myndbönd þar sem umferðin er gerð upp í máli og myndum. Leikmaður og lið umferðarinnar er valið, sem og bestu mörkin, bestu markvörslurnar og eftirminnilegasta augnablikið.

En fyrir þá sem vilja einfaldlega sjá allt það helsta sem gerðist í umferðinni í stuttu og skemmtilegu myndbandi er það einnig í boði. Þá er einnig kíkt í sögubækurnar og rifjað upp eftirminnilegt atvik.

Smelltu á „Sjónvarp“ hér í valmyndastikunni efst og svo „Íþróttir“ og „Enska boltann“ til að sjá myndböndin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×