Innlent

Rúta ók aftan á dráttarvagn - tveir á sjúkrahús

Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að rúta ók aftan á dráttarvél við bæinn Háls í Fnjóskadal um klukkan fjögur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri varð slysið með þeim hætti að þrír bílar óku á eftir dráttarvélinni, sem dró vagn á eftir sér. Fyrsti bíllinn fór fram úr og ætlaði rútubílstjórinn að gera slíkt hið sama.

Aftur á móti sá hann ekki, að þriðji bíllinn, sem var á eftir rútunni, var þegar lagður af stað. Ók rútan því utan í bifreiðina og síðan aftan á dráttarvagninn, en ökumaður vagnsins missti stjórn á vinnuvélinni og ók út af við stuðið.

Engir farþegar voru í rútunni en flytja þurfti ökumennina á rútunni og á dráttarvagninum á spítala. Samkvæmt bestu vitneskju lögreglunnar á Akureyri eru mennirnir ekki alvarlega slasaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×