Innlent

Mikið um umferðaróhöpp í dag

Á annan tug árekstra varð á höfuðborgarsvæðinu í dag samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is. Það er talsvert yfir meðallagi.

Meðal annars varð fjögurra bíla árekstur á Breiðholtsbraut í dag auk þess sem tveir þriggja bíla árekstrar áttu sér stað.

Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl vegna umferðaróhappanna.

Þá olli ölvuð kona árekstri í hádeginu í dag á Bústaðavegi. Sá árekstur var einnig minniháttar en lögreglan var kölluð til vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×