Innlent

Strætó eykur tíðni ferða

Nú þegar skólar hefjast og sumarleyfum lýkur eykst tíðni ferða hjá Strætó.fréttablaðið/pjetur
Nú þegar skólar hefjast og sumarleyfum lýkur eykst tíðni ferða hjá Strætó.fréttablaðið/pjetur
Vetraráætlun Strætó 2011-2012 tekur gildi á sunnudaginn. Tíðni ferða eykst á flestum leiðum og verður svipuð og liðinn vetur.

Leiðir 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6.30 til 18.00 á virkum dögum í stað 30 mínútna í sumar.

Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 aka einnig á 15 mínútna fresti, en einungis á annatímum, frá klukkan 6.30 til 9.00 og 14.00 til 18.00 á virkum dögum. Nánari upplýsingar um vetraráætlun Strætó er að finna á vefnum straeto.is. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×