Hestamenn fá margvíslegan stuðning 21. júní 2011 15:22 Haraldur Þórarinsson, stjórnarformaður Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu samstarfssamninginn.
Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktarsamning sem tekur til nokkurra af helstu viðburðum hestamennsku og hestaíþrótta til loka árs 2013, þar á meðal landsmóta, Íslandsmóta og bæði heimsmeistaramóts og Norðurlandamóts íslenskra hesta. Stuðningur Samskipa er með margvíslegum hætti, svo sem flutningar og flutningatengd þjónusta, verðlaunagripir, tæki og búnaður. Haraldur Þórarinsson, stjórnarformaður Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu samstarfssamninginn. Haraldur segir að stuðningur Samskipa sé afar mikilvægur og hafi þau áhrif að auðveldara verði að halda niðri kostnaði við mótshald og útgerð landsliða, sem ella myndi lenda á hestamönnum og mótsgestum að greiða í formi hærri aðgangseyris og þátttökugjalda. Ásbjörn segir að Samskip horfi meðal annars til þess að íslenski hesturinn beri hróður lands og þjóðar víða um veröld og höfði til fjölda fólks á öllum aldri. Það sjáist best á því að um 11.500 manns manns stundi hestamennsku á Íslandi og um 60.000 manns innan alþjóðasamtaka íslenska hestsins í 19 þjóðlöndum og þremur heimsálfum. Hestamót hérlendis og erlendis séu fjöldasamkomur sem dragi sífellt að sér meiri athygli fólks, langt út fyrir raðir sjálfra iðkendanna. Samskip vilji leggja samtökum hestmanna lið og styrkja enn frekar öfluga starfsemi þeirra í þágu iðkenda hestaíþrótta og allra aðdáenda íslenska hestsins nær og fjær. Hestaíþróttaviðburðir sem samningurinn tekur til: Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði 2011 og í Reykjavík 2012, Íslandsmót fullorðinna á Selfossi 2011, Íslandsmót barna- og unglinga í Keflavík 2011, Íslandsmót fullorðinna á Vindheimamelum 2012, Íslandsmót barna- og unglinga á Hellu 2012, Hestadagar í Reykjavík 2012, ístölt landsliðsins í Skautahöllinni í Reykjavík heimsmeistaramótið í Austurríki 2012 og Norðurlandamótið 2013.
Mest lesið Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Erlent Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram Veður Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Íslendingar öllu veðri vanir Innlent Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Innlent „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Innlent Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina á Akureyri Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Sjá meira