Umfjöllun: Grindavík marði botnlið 1.deildar Guðmundur Marinó Ingvarsson á Grindavíkurvelli skrifar 21. júní 2011 16:31
Grindavík verður í pottinum þegar dregið verðu í átta liða úrslit Valitor bikarsins á morgun eftir 2-1 sigur á HK, botnliði fyrstu deildar, á heimavelli í kvöld. Grindavík lék manni færri allan seinni hálfleikinn en HK hefði hæglega getað fengið meira út úr leiknum. Grindvíkingar byrjuðu leikinn mun betur og voru komnir 2-0 yfir eftir aðeins 19 mínútur og geta Grindvíkingar í raun sjálfum sér um kennt að hafa ekki gert út um leikinn í kjölfarið. Liðið var mikið betri aðilinn en sótti ekki af sama krafti eftir mörkin tvö. Þar fyrir utan átti Óskar Pétursson að verja aukaspyrnu Hafsteins Briem sem hafnaði í netinu á 32. mínútu en það skal ekki tekið af Hafsteini að skot hans var fast. Grindavík kastaði annarri líflínu til HK þegar Bogi Rafn Einarsson lét reka sig af leikvelli á síðustu mínútu fyrir hálfleiks með glórulausri tveggja fóta tæklingu á Orra Sigurð Ómarsson. Hárrétt rautt spjald. HK var sterkari aðilinn í seinni hálfeik og fékk nokkur fín færi en skotin voru ýmist of laus, beint á Óskar eða fram hjá. HK getur engum nema sjálfum sér kennt um að vera úr leik í bikarnum en að sama skapi fékk Grindavík nokkru dauðafæri til að skora þriðja marki en þau komu öll í uppbótartíma þegar allir leikmenn HK fóru fram til að sækja jöfnunarmarkið.Grindavík -HK 2-1 1-0 Magnús Björgvinsson ´14 2-0 Magnús Björgvinsson ´19 2-1 Hafsteinn Briem ´32 Grindavíkurvöllur. Áhorfendur: 173 Dómari: Pétur Guðmundsson Skot (á mark): 9-9 (8-6) Varið: Óskar 5 – Ögmundur 6 Hornspyrnur: 2-2 Aukaspyrnur fengnar: 7-6 Rangstöður: 3-5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Enski boltinn Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira