Innlent

Ekið á kind og lamb við Patreksfjörð

Ekið var á kind og lamb á þjóðveginum skammt frá Patreksfirði í gærkvöldi og drápust þau bæði. Það sem af er mánuðinum hefur lögreglunni á Vestfjörðum borist ellefu tilkynningar um slíkt, héðan og þaðan af öllu svæðinu, enda eru óvíða fjárheldar girðingar við þjóðvegina á Vestfjörðum.

Í flestum tilvikum gerist þetta þannig að kind er öðru megin við veginn, en lamb eða lömb hinumegin. Þegar bílinn ber að skjótast lömbin eldsnöggt upp á veginn og ætla að laupa til móðurinnar, eða kindin stekkur í átt til lambanna, og varar lögreglan ökumenn sérstaklega við þessum aðstæðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×