Innlent

Næturfrost á hálendinu

MYND/Vegagerðin
Næturfrost var víða á hálendinu í nótt og niður í byggðir á norðaustanverðu landinu. Kuldinn á hálendinu tefur fyrir að snjófannir bráðni þar af vegum, þannig að hálendisvegirnir eru lang flestir enn lokaðir.

Undanfarin ár hafa þeir yfirleitt verið orðnir færir í byrjun júní þannig að það stefnir í að opnun þeirra tefjist um mánuð í ár. Vegagerðin hefur heldur ekki vegna fjárskorts, getað sent snjóruðningstæki upp á hálendið til að ryðja vegina og flýta þannig fyrir að þeir þorni og verði færir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×