Innlent

Opnað fyrir ótakmarkaða sköpun á lénum

Bráðum verður hægt að sækja um að nýtt lén verði skapað með því nafni sem maður vill, en það mun þó kosta sitt.
Bráðum verður hægt að sækja um að nýtt lén verði skapað með því nafni sem maður vill, en það mun þó kosta sitt. Mynd/AP
Fyrirtækið ICANN (Internet Corporation for Assigned Names and Numbers), sem hefur um árabil séð um ýmis verkefni tengd internetinu, svo sem úthlutun IP-talna, hefur nú ákveðið að leyfa sköpun nýrra léna.

Í dag eru almennu höfuðlénin aðeins 22 auk um 250 landaléna á borð við hið íslenska .is, en þessi breyting mun opna endalausa möguleika fyrir vefsíðuendingar á borð við .coke, .google eða jafnvel .hvaðsemer.

ICANN mun opna fyrir umsóknir á næsta ári og er búist við að fyrst í röðinni verði stór fyrirtæki og borgir en það að fá eina umsókn afgreidda mun kosta um 21,5 milljónir og verði hún samþykkt mun taka við árgjald upp á 2,9 milljónir. Þó svo möguleikarnir séu í raun ótakmarkaðir, þá munu fyrirtæki þurfa að sýna fram á að þau eigi sannarlega nafnið sem þau séu að kaupa lén fyrir.

Féð verður notað til þess að kosta sköpun nýju lénanna en auk þess mun töluverð upphæð fara í laun sérfræðinganna sem verða settir í að fara yfir þær mörg þúsund umsóknir sem búist er við að berist ICANN. Hluti peninganna verður síðan settur í að standa undir þeim lagakostnaði sem skapast gæti af mögulegum málsóknum umsækjanda sem ekki fá þau lén samþykkt sem þeir sóttu um.

Einnig hefur áður verið samþykkt að leyfa skráningar á landalénum þar sem ritmál er annað en Latneska skrifmálið, t.d. Kína, Indland o.fl. Þá hafa þegar verið samþykkt almenn lén eins og .xxx auk þess sem vinna við .hamburg og .berlin er komin vel á veg.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 12. janúar 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×