Innlent

Tekinn með fjögur kíló af amfetamíni

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmta júlí næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Maðurinn var handtekinn við komuna til landsins á mánudag í síðustu viku með fjögur kíló af amfetamíni í fórum sínum. Rannsókn málsins er á frumstigi og vill lögreglan ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×