Innlent

178 útskrifaðir frá Keili

Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs sem hefur aðsetur á Keflavíkurflugvelli, útskrifaði samtals 178 nemendur í vor, en útskriftir fóru fram bæði í Reykjavík og á Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Keili.

Í vor útskrifuðust 73 manns úr Háskólabrú, undirbúningsnámi fyrir háskólanám, 70 einkaþjálfarar, 13 íþróttaþjálfarar og 22 flugþjónar en til viðbótar verða í sumar brautskráðir nemendur bæði úr atvinnuflugi og Háskólabrú með raungreinaval.

Keilir hefur nú starfað í fjögur ár.  Á þeim tíma hafa 902 nemendur hlotið prófskírteini frá Keili þar af 504 af Háskólabrú, en í vor útskrifaðist fyrsti árgangur Háskólabrúar með prófgráðu úr háskóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×