Innlent

Dottið í dúnalogn á Akureyri

Allt er nú dottið í dúnalogn á Akureyri, eftir erilsama bíladaga um helgina, að sögn lögreglunnar þar. Alls þurfti að stinga hátt í tuttugu manns í steininn um helgina vegna óspekta, átaka og ölvunar.

Þegar mest gekk á þurfti að rýma klefa um miðja nótt til að koma nýjum vandræðaseggjum á bak við lás og slá, þannig að segja má að sumir klefar hafi verið tvísetnir sömu nóttina. Ekkert stórmál kom þó til kasta Akureyrarlögreglunnar um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×