Innlent

Otaði hnífi og stal sálmabókum

Maðurinn stal meðal annars sálmabókum úr Grensáskirkju.
Maðurinn stal meðal annars sálmabókum úr Grensáskirkju.
Tveir karlmenn, sem handteknir voru í Reykjavík í gærdag eftir að hafa sýnt ofbeldistilburði, dvelja enn í fangageymslum lögreglunnar, þar sem þeir sofa úr sér fíkniefnavímu og verða yfirheyrðir í dag.

Annar þeirra, vopnaður stórum hnífi,  hafði í hótunum við fólk í Nóatúnsversluninni við Háaleitisbraut, stal síðan sálmabókum úr Grensáskirkju og var að reyna að skera fána niður úr flaggstöng, þegar hann var gripinn.

Hinn hrinti og ógnaði starfsstúlku í vídeóleigu skammt frá Hlemmi. Lögreglumenn hlupu hann uppi, en þá hafði hann í hótunum við þá og sýndi mikinn mótþróa. Báðir mennirnir voru undir miklum áhrifum fíkniefna, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×