Innlent

Tekinn á ofsahraða á Hellisheiði

MYND/Páll Bergmann
Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Hellisheiði eftir að hafa mælt bílinn á 154 kílómetra hraða. Sekt fyrir tiltækið nemur 130 þúsund krónum auk þess sem ökumaðurinn missir ökuréttindi í einn mánuð.

Annars voru hátt í tuttugu ökumenn teknir fyrir hraðakstur á Hellisheði um helgina, en þeir óku allir hægar en sá sem tekinn var í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×