Innlent

Eldur í mannlausum sendibíl

MYND/Pjetur
Eldur kviknaði í mannlausum sendibíl, sem stóð í grennd við Olísstöðina norðan við Gullinbrú í Reykjavík um klukkan fjögur í nótt. Vegfarandi tilkynnti um eldinn og var bíllinn alelda þegar slökkvilið kom á vettvang.

Eldurinn var slökktur á skammri stundu, en bíllinn er ónýtur. Lögreglan rannsakar nú eldsupptök, sem enn eru óljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×