Innlent

Sprautufíklar þurfa að mæta skilningi

Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson
Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson
Formaður HIV-Íslands – Alnæmissamtakanna á Íslandi, Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, hefur sagt af sér formennsku í félaginu. „Mér hefur ekki tekist að blása meðstjórnendum mínum í brjóst þann ákafa sem ég hef til að berjast fyrir mannréttindum HIV-smitaðra fíkla sem nota sprautubúnað,“ segir Gunnlaugur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér.

„Alvarlegt ástand ríkir hér á landi í þessum efnum, þar sem þeim sem smitast af HIV-veirunni við að deila nálum hefur fjölgað hratt síðustu mánuði. Ég hef viljað fara af stað með gagnrýni og benda um leið á leiðir til að taka á þessari aukningu,“ segir Gunnlaugur í samtali við Fréttablaðið. Hann segir afar brýnt að HIV-smituðum sprautufíklum sé mætt á þeirra eigin forsendum en slíkt sé ekki gert í dag.

„Sprautufíklar sem smitast þurfa að mæta skilningi og fá strax lyfjameðferð eins og allir aðrir. Það virðist vera skoðun heilbrigðisyfirvalda á Íslandi að fíklar sem nota sprautubúnað séu þess ekki umkomnir að hefja lyfjameðferð við HIV þrátt fyrir augljósan ávinning.“

Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir það ekki rétt að sprautufíklar fái ekki viðeigandi lyfjameðferð en hins vegar sé erfitt að viðhalda lyfjameðferð ef sjúklingur taki ekki lyfin sín og sinni ekki meðferð, eins og oft sé tilfellið með fíkla í neyslu. „Það er hins vegar ekki rétt að sjúklingar komi að lokuðum dyrum; okkar læknar reyna alltaf eftir bestu getu að sinna öllum sjúklingum og gera allt hvað þeir geta til þess,“ segir Haraldur.

Á heimasíðu HIV Íslands kemur fram að lyfjameðferð HIV-smitaðra hamli meðal annars fjölgun veirunnar í blóðinu, auk þess sem hún dragi úr hættu á smiti. Veiran getur hins vegar myndað ónæmi gegn lyfjunum ef lyfjataka er slitrótt eða dettur niður.

„Yfirlýsing Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar og UNAIDS um „Alheimsaðgengi núna“ er skýlaus krafa um að allir eigi rétt á lyfjameðferð gegn HIV og alnæmi. Þrátt fyrir þessa afstöðu WHO og UNAIDS er það svo hér á Íslandi, eftir minni bestu vitund, að einungis einn af þeim sprautufíklum sem greinst hafa með HIV og enn eru í neyslu sé byrjaður á lyfjameðferð,“ segir Gunnlaugur.

juliam@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×