Miklar sveiflur á mælingum loftgæða í Reykjavík 23. maí 2011 15:31 Öskuskýið að leggjast yfir borgina í gærkvöldi Mynd Jóhanna Margrét
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast til borgarinnar í nótt þegar þau voru há. Reikna má með að mæligildi komi til með að sveiflast áfram. Öskufallið var samt ekkert í líkingu við það sem er fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstíma í umferðinni og þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni aska sem fýkur upp. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Reykjavíkurborg hefur í varúðarskyni vegna svifryks virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við verklag sem viðhaft var í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli. Veðurstofa Íslands spáir áfram norðlægum áttum sem að öllum líkindum ná að halda ösku frá höfuðborgarsvæðinu. Engu að síður er full ástæða til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Grímsvötnum. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Í morgun fóru fram fundir yfirstjórnar Reykjavíkurborgar og viðbragðsaðila vegna hugsanlegra áhrifa eldgossins. Fylgjast borgaryfirvöld nákvæmlega með gangi mála en vöktun á loftgæðum í Reykjavík er mjög nákvæm og áreiðanleg. Allar fréttir af breytingum verða sendar út jafnóðum á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavík.is svo og til fjölmiðla. Viðbragðsteymi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar fylgist með loftgæðum í borginni allan sólarhringinn í gegnum þrjár mælistöðvar. Ennfremur fylgist eftirlitið vel með vatnsbólum en talið er ólíklegt að neysluvatn Reykvíkinga spillist jafnvel þótt aska berist yfir borgina enda er neysluvatnið fengið af allnokkru dýpi úr miklum grunnvatnsstraumum. Tryggt verður að allar starfseiningar Reykjavíkurborgar fái ítarlegar upplýsingar í tengslum við hugsanlegt öskufall í borginni. Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum borgarinnar. Upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna hugsanlegs öskufalls er að finna á www.menntasvid.is og www.leikskolasvid.is. Íbúar eru hvattir til fylgjast vel með fréttum og kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is og heimasíðu umhverfisstofnunar, www.ust.is.
Mest lesið Starbucks kemur ekki til Íslands Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Ofurölvi vistaður í fangaklefa Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Dregur úr vindi með morgninum Veður Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Fleiri fréttir Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Sjá meira