Innlent

Þrír greinilegir sigkatlar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einar segir að þrír sigkatlar séu greinilegir. Á þessari mynd er einn þeirra greinilegur. Mynd/ Landhelgisgæslan.
Einar segir að þrír sigkatlar séu greinilegir. Á þessari mynd er einn þeirra greinilegur. Mynd/ Landhelgisgæslan.
„Það eru engin bein merki um eldgos. Það útilokar samt ekki að það hafi orði gos undir jöklinum. Það er mjög erfitt að skera úr um það," segir Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Einar var staddur á Vík í Mýrdal þegar Vísir talaði við hann.

„Það eru þarna allavega þrír sigkatlar inn á jöklinum sem hefur orðið sig. Í tveimur þeirra hefur hrunið líka í miðjunni þannig að þetta hefur gerst ansi snögglega,“ segir Einar.

„Vatnsflóðið virtist vera í miklum rénun þegar flogið var yfir jökulinn í morgun. Hann segir að mest hafi orðið vart við vatn í Múlakvísl og Skálm.


Tengdar fréttir

Sigkatlar benda til að lítið gos sé hafið

Sigkatlar hafa myndast sem gæti verið í samræmi við það að lítið gos sé hafið sem ekki er komið upp á yfirborðið, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni. Sigurlaug hefur þetta eftir stýrimanni á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flaug yfir Mýrdalsjökul snemma í morgun. Þá sáust sigkatlarnir, en enginn gosmökkur sást.

Fólk safnast saman í fjöldarhjálpastöðvum

Þegar eru komnir 30 manns í fjöldahjálpastöðina á Kirkjubæjarklaustri, segir Elín Valdimarsdóttir, einn fulltrúa Rauða krossins þar. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri og í Grunnskólanum í Vík vegna hlaupsins í Múlakvísl og þess goss sem virðist vera hafið í Kötlu.

Kötlugos hugsanlega hafið

Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói hefur mælst í Kötlu á mælum Veðurstofunnar. Sigurlaug segist vera að bíða eftir upplýsingum frá sérfræðingi sem hún sendi með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í morgun til þess að kanna aðstæður.

Suðurlandsvegur enn lokaður

Suðurlandsvegi hefur verið lokað í báðar áttir við Vík og austan við Skálm vegna hlaups í Múlakvísl og mögulegs goss í Kötlu. Engar hjáleiðir eru mögulegar, nema Fjallabaksleið, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.

Hlaup í Múlakvísl - myndir

Enn og aftur létu náttúruöflin finna fyrir sér í nótt þegar hlaup hófst í Múlakvísl. Í morgun bárust svo fréttir af því að líklegast væri hafið gos í Kötlu. Meðfylgjandi myndir tók Þórir N. Kjartansson af hlaupinu klukkan átta í morgun. Smelltu á myndasafn hér að neðan til að skoða myndirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×