Innlent

Engar uppsagnir á leikskólum Reykjavíkur um þessi mánaðamót

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leikskóli.
Leikskóli.
Það verða engar uppsagnir um næstu mánaðamót, segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs. Vegna áformaðra hagræðingaraðgerða á Leikskólasviði má búast við því að segja þurfi upp starfsmönnum. Hagræðingaraðgerðirnar hafa hins vegar ekki verið samþykktar á æðstu stöðum í borgarkerfinu.

„Þetta ferli er allt í umsögn sem er til 25. mars. Síðan fer þetta fyrir menntaráð og ÍTR og svo fer þetta fyrir borgarráð og jafnvel borgarstjórn,“ segir Ragnhildur Erla. Þessi vinna taki sinn tíma og henni verði ekki lokið fyrir mánaðamót. „Til þess að upplýsa minn hóp þá sendi ég tölvupóst með þessum skilaboðum,“ segir Ragnhildur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×