Innlent

BSRB: Minnisblaði ASÍ og SA harðlega mótmælt

Stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála. Stjórnin segir að í minnisblaðinu, sem dagsett er 25. febrúar síðastliðinn, komi fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag er þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. „Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð.“

Fulltrúar BSRB, BHM og KÍ gengu á fund forsætis- og fjármálaráðherra í dag og afhentu þeim bréf þar sem þessum áherslum er mótmælt. „Þar kemur fram að félögin telja ekki þörf á að funda frekar um framtíðarskipan lífeyrismála, en vinnuhópur er í gangi þar um samkvæmt 9. grein stöðugleikasáttmálans, fyrr en minnisblaðið hefur formlega verið dregið til baka og þeim hugmyndum sem þar koma fram hefur verið hafnað,“ segir ennfremur.  Þá kemur fram að félögin hafa krafist fullvissu frá ríkisstjórninni um að hún muni ekki standa fyrir skerðingu á núverandi réttindum.

Hér er nánar fjallað um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×