Fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar segir sig úr flokknum 18. mars 2011 12:13
Guðbrandur Einarsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar og A-listans í Reykjanesbæ hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann segir skoðanir sínar og flokksforystunnar ekki lengur fara saman og segir því skilið við flokkinn. Guðbrandur tapaði slagnum um efsta sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar. Hann tók ekki annað sætið á listanum þrátt fyrir að það stæði honum til boða. Nú hefur hann sagt skilið við Samfylkinguna fyrir fullt og allt. Í yfirlýsingu frá Guðbrandi segir hann þrjár ástæður liggja til grundvallar úrsögn hans. Í fyrsta lagi hafi núverandi bæjarfulltrúar lagst gegn tillögum um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Guðbrandur hafði unnið að tillögu um bygginguna ásamt bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þetta túlkar Guðbrandur sem vantraust. Guðbrandur telur einnig til að bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafi ekki samþykkt tillögu Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins um að orkuauðlindir ættu að vera í sameign þjóðarinnar en sömu tillögu hafði Guðbrandur flutt nokkrum árum áður. Þá gagnrýnir Guðbrandur Samfylkinguna fyrir að hafa ekki skipað hann áfram sem fulltrúa flokksins í HS Orku. „Ég sé því ekki að skoðanir mínar og þeirra sem eru forsvarsmenn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ nú um stundir fari saman á nokkurn hátt," segir Guðbrandur í yfirlýsingu sinni.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Einn var stunginn í Breiðholti Innlent „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Innlent Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum Innlent Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Innlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Innlent Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Innlent Fleiri fréttir Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Sjá meira