Erlent

Enn einn í haldi vegna hlerana

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Breska lögreglan hefur handtekið einn mann til viðbótar vegna símhlerana blaðsins News of the World.

Maðurinn, sem er þrítugur, var handtekinn í gær og er, líkt og aðrir sem tengjast málinu, grunaður um samsæri um að hnýsast í talhólfsskilaboð þekktra sem óþekktra einstaklinga í leit að fréttum. Meðal þeirra voru stjórnmálamenn, kóngafólk, frægðarfólk og fórnarlömb glæpa.

Alls hefur nú á annan tug manna verið handtekinn vegna málsins. Blaðið hefur verið lagt niður vegna hneykslisins. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×