Lífið

Spila fyrir 100 þúsund í Kína

Hljómsveitin Bloodgroup spilar í fyrsta sinn í Kína í byrjun október.
mynd/heiða helgadóttir
Hljómsveitin Bloodgroup spilar í fyrsta sinn í Kína í byrjun október. mynd/heiða helgadóttir
„Þetta eru nýjar slóðir fyrir okkur. Það er mikil stemning í hópnum,“ segir Ragnar Jónsson, hljómborðsleikari Bloodgroup.

Elektrópoppsveitin heldur sína fyrstu tónleika í Kína í byrjun október þegar hún spilar á þremur tónlistarhátíðum í borgunum Peking, Shanghæ og Zhenjiang. Búist er við um eitt hundrað þúsund gestum á alla vega tvær hátíðanna og ætlar Bloodgroup að mæta vel undirbúin til leiks. „Við ákváðum að taka með okkur hljóðmann og ljósamann. Við ætlum að vera með flotta ljósasýningu og reyna að gera þetta svolítið skemmtilegt,“ segir Ragnar.

Kínverjarnir borga fyrir allt ferðalag Blood-group, þar á meðal fyrir aukamennina tvo, enda vilja þeir hafa tónleikana flotta, að sögn Ragnars. „Við ákváðum að vera ekkert að spara, það var engin ástæða til þess enda borga þeir allan kostnaðinn.“

Bloodgroup sótti um að spila í Kína í gegnum tónlistarsíðuna Sonicbids.com. „Það var þrjátíu þúsund manna hópur sem sótti um og við unnum þetta bara. Það var helvíti gott.“

Hljómsveitin dvelur í Kína í níu daga, kemur síðan heim og spilar á Akureyri og Egilsstöðum, og flýgur síðan út til Rússlands. Þar spilar hún á tónlistarhátíðinni The Rock Immune Festival. Rússland verður tuttugasta landið sem Ragnar og félagar heimsækja á árinu. „Við erum búin að spila rosalega mikið. Það er ástæðan fyrir því að maður gerir þetta. Það er skemmtilegt að vera á flandri og spila í hinum og þessum löndum.“

Á næsta ári hefur stefnan verið sett á tóneikaferð um Evrópu og hefst hún í Hollandi í janúar. Bloodgroup ætlar einnig að gefa út plötu á næsta ári sem fylgir eftir hinni vinsælu Dry Land sem kom út fyrir tveimur árum.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×