Erlent

Dvínandi vonir um að fólk finnist á lífi

Leitað í rústunum Ættingjar fylgdust með leitinni milli vonar og ótta.nordicphotos/AFP
Leitað í rústunum Ættingjar fylgdust með leitinni milli vonar og ótta.nordicphotos/AFP
Sex manns var bjargað úr rústum húsa á jarðskjálftasvæðinu í austanverðu Tyrklandi í gær. Fjórum var bjargað úr rústum sama húss eftir að einn þeirra náði að hringja eftir hjálp úr farsíma sínum og greina frá því hvar hann var. Tveir til viðbótar fundust eftir að hafa verið grafnir undir braki í 27 klukkustundir.

Vitað var um nærri 300 látna í gær en óttast var að jarðskjálftinn á sunnudag, sem mældist 7,2 stig að styrkleika, hefði kostað allt að þúsund manns lífið. 1.300 hið minnsta eru slasaðir eftir skjálftann. Fólk reyndi að bera kennsl á ástvini sína, en líkum var raðað upp til að það væri mögulegt.

Verst varð borgin Ercis úti, en þar búa 75 þúsund manns. Um það bil 80 fjölbýlishús hrundu þar til grunna. Þar er bæði rafmagnslaust og vatnslaust en leitað var að fólki í rústum fram á nótt með hjálp rafknúinna flóðljósa.

Jarðskjálftinn reið yfir í austanverðu landinu, skammt frá landamærum Írans, en á þessum slóðum eru jarðskjálftar algengir.

Meira en 200 eftirskjálftar hafa orðið á þessum slóðum, sá stærsti um sex stig.

Björgunarsveitir hafa sett upp tjöld og neyðarskýli handa þeim þúsundum manna sem misst hafa heimili sín eða telja ekki óhætt að snúa heim aftur alveg strax. Þúsundir eyddu einnig annarri nóttinni í röð undir berum himni í köldu veðri.

Meira en tvö þúsund manns sinntu leitarstörfum í borginni og höfðu leitarhunda sér til aðstoðar.

Í borginni Van hrundu einnig margar byggingar. Forsætisráðherrann Recep Tayyip Erdogan skoðaði sig um í borginni í gær og sagði að nánast öll hús sem byggð hafi verið úr leir hefðu hrunið eða skemmst.

Rúmlega tuttugu rústabjörgunarsveitir buðu fram aðstoð sína strax á sunnudag, þar á meðal íslenska sveitin. Þá höfðu leiðtogar margra ríkja boðið fram aðstoð, en forsætisráðherra Tyrklands afþakkaði aðstoð og sagði Tyrki ráða við björgunarstörfin enn sem komið væri.

Líkurnar á því að fleiri finnist á lífi í rústunum eru litlar, meðal annars vegna kuldans.

gudsteinn@frettabladid.is

thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×