Erlent

Yngsta amma heims aðeins 23 ára gömul

Yngsta amma heims er hin 23 ára gamla Rifca Stanescu. Rifka var aðeins 12 ára gömul þegar hún eignaðist dótturina Maríu í Rúmeníu. Hún ól dóttur sína upp í góðum siðum og vonaði að hún fylgdi ekki í fótspor sín þegar kæmi að barneignum. Hún lagði hart að Maríu að halda áfram í skóla en hún fór þó að heiman til þess að giftast aðeins tíu ára gömul.

Og eplið fellur sjaldan langt frá eikinni því María fæddi sex mánuðum síðanson, aðeins ellefu ára gömul. Þetta var fyrir tveimur árum síðan en Rifca segist í samtali við breska blaðið The Sun í dag vera glöð fyrir hönd dóttur sinnar. Hún segist þó hafa vonast eftir einhverju betra fyrir hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×