Viðskipti erlent

Fitch setur lánshæfi Grikklands í ruslflokk

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur ákveðið að setja lánshæfiseinkunn Grikklands í ruslflokk eða BB+ með neikvæðum horfum. Þar með fylgir Fitch í fótspor Moody´s og Standard & Poor´s sem einnig eru með lánshæfieinkunn landsins í ruslflokki.

Sökum ákvörðunnar Fitch hækkuðu vextir á tíu ára ríkisskuldabréfum Grikklands aftur yfir 11% en vextirnir höfðu lækkað úr 12,6% fyrir aðeins viku síðan og niður undir 11%.

Grísk stjórnvöld brugðust við ákvörðun Fitch með því að hundskamma matsfyrirtækið og segja að matsferli þess, sem og annarra matsfyrirtækja, væri meingallað.

Fjárfestar hafa losað sig við grísk skuldabréf í kjölfar ákvörðunnar Fitch sem tilkynnt var fyrir helgina. Hafa þeir m.a. leitað í gull og aðra hrávöru í staðinn. Þannig endaði þriggja daga verðlækkunarhrina á gulli á föstudag og það tók að hækka aftur í verði á alþjóðlegum mörkuðum, að því er segir í umfjöllun börsen.dk um málið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×